Vertu þinn eigin hitaveitustjóri
NIBE varmadælur – snjöll hitun fyrir öll heimili
Nýju NIBE varmadælurnar henta flestum húsum, eru einfaldar í uppsetningu og stilla sig sjálfkrafa eftir veðri og venjum þínum. Þú hefur fulla stjórn í símanum – fyrir hagkvæmari, umhverfisvænni og þægilegri hitun, í dag og til framtíðar.
40 ára reynsla sem skiptir máli
Áratuga þróun og reynsla skilar sér í öflugum og orkusparandi lausnum. Breitt vöruúrval tryggir að þú finnir réttu lausnina fyrir þitt heimili – og njótir þægilegs og heilnæms inniloftslags allt árið.
Jarðvarmadælur
Öflugasta og hagkvæmasta lausnin til lengri tíma. Fullkomin fyrir aðstæður þar sem jarðvegur, borhola eða vatnsból er aðgengilegt. Tryggir hámarks orkunýtingu, lágan rekstrarkostnað og stöðuga hitun – með búnaðinn þægilega innandyra.
Loft í vatn varmadælur
Öflugur valkostur án jarðvinnu. Fullkomin lausn þegar ekki er hægt að leggja lagnir í jörð. Sameinar úti- og innieiningu til að skila stöðugri, sparneytinni hitun fyrir heimilið þitt.
Loft í loft varmadælur
Hagkvæmasta leiðin til hitunar. Einföld og skilvirk lausn með úti- og innieiningu sem nýtir varma úr útilofti og dreifir honum jafnt inn í rýmið með blæstri.
Útloftunarvarmadælur
Sameinar varmadælu og loftræstingu í einu kerfi sem endurnýtir varma úr innilofti. Sérstaklega hagkvæm þar sem hitaveita er dýr og orkunýtni skiptir máli.
Jarðvarmadælur
Loft í vatn varmadælur
Loft í vatn varmadælur
Grindur fyrir veitur
Loft í loft varmadælur
Útloftunar varmadælur
Stjórnbúnaður á íslensku
Einstaklega notendavænt viðmót
NIBE MyUplink
Fylgstu með varmadælunni og breyttu hitastigi á netinu
NIBE app
Fylgstu með varmadælunni og breyttu hitastigi með símanum
Styrkur og vsk endurgreiðsla
Við kaup á varmadælu er hægt að sækja um styrk frá Umhverfis- og Orkustofnun og einnig er hægt að fá endurgreiðslu virðisaukaskatts
