Yfirlit
- Ábyrgð til einstaklinga/neytenda: 24 mánuðir frá afhendingu.
- Ábyrgð til fyrirtækja: 12 mánuðir frá afhendingu.
- Gildir fyrir framleiðslugalla í eðlilegri notkun.
- Undanþegið: slitvarahlutir (síur, reimar, legur o.fl.), röng notkun og utanaðkomandi skemmdir.
- Reglulegt viðhald þarf að vera skjalfest til að ábyrgð haldi gildi.
- Galli skal tilkynntur skriflega innan 30 daga frá því hann kemur í ljós.
- Hitatækni ákveður hvort farið er í viðgerð eða skipti.
- Flutnings- og ferðakostnaður getur verið á ábyrgð kaupanda.
- Engin ábyrgð á óbeinum tjónum eða rekstrartapi.
- Skilaréttur er almennt 30 dagar á lagervörum en innsiglaðar og sér pantaðar vörur er almennt ekki hægt að skila.
Fullir skilmálar
-
Gildissvið
Þessir skilmálar gilda um sölu, afhendingu og þjónustu á vörum og búnaði frá Hitatækni Skilmálarnir víkja ekki lögbundnum neytendaréttindum, samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 eða öðrum lögum er gilda um viðskipti Hitatækni. við neytendur, eins og það hugtak er skilgreint samkvæmt framangreindum lögum.
- Skil og skipti
Skil og skipti eru heimil innan 30 daga frá kaupdegi gegn framvísun kvittunar, enda sé vara ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Rofnar innsiglaðar rafvörur fást ekki skilaðar né þeim skipt, nema um gallaða vöru sé að ræða.
Sérpantanir og sérunnar vörur fást ekki endurgreiddar né þeim skipt.
-
Ábyrgðartími
Til endanotenda (einstaklinga/neytenda): 24 mánuðir frá afhendingu. Til fyrirtækja: 12 mánuðir frá afhendingu.
-
Hvað fellur undir ábyrgð
Ábyrgðin nær til framleiðslugalla og gallaðra varahluta sem koma fram við eðlilega notkun,
-
Undanþágur frá ábyrgð
Ábyrgðin nær ekki til slit- og neysluvöru (síur, reimar, legur o.fl.), skemmda vegna rangrar notkunar, ofálags, óviðeigandi uppsetningar eða skorts á reglulegu viðhaldi, né skemmda sem rekja má til utanaðkomandi þátta s.s. eldsvoða, vatnstjóns, rafmagnstruflana eða náttúruhamfara. Einnig fellur ábyrgð niður ef breytingar eða viðgerðir eru framkvæmdar án atbeina Hitatækni.
-
Viðhald
Reglulegt viðhald er forsenda þess að ábyrgð haldi gildi. Viðskiptavinur skal tryggja að viðhald sé skjalfest og í samræmi við leiðbeiningar.
-
Ferli við ábyrgðarkröfu
Galli skal tilkynntur skriflega innan 30 daga frá því hann kemur í ljós. Hitatækni metur hvort um ábyrgð sé að ræða og ákveður viðeigandi úrræði. Flutningskostnaður, ferðakostnaður og ferðatími starfsmanna Hitatækni er almennt á ábyrgð kaupanda.
-
Takmörkun ábyrgðar
Hitatækni ber ekki ábyrgð á óbeinum tjónum, svo sem rekstrartapi eða afleiddum skaða. Hámarksábyrgð takmarkast við verðmæti þeirrar vöru eða verks sem krafan snýst um.
-
Greiðsluskilmálar
Greiðsluskilmálar eru samkvæmt reikningi og samningi hverju sinni. Vextir og dráttarvextir leggjast á ógreiddar fjárhæðir samkvæmt gildandi lögum.
-
Afhending og áhætta
Áhætta flyst til kaupanda við afhendingu vöru. Hitatækni ber ekki ábyrgð á seinkun sem orsakast af atvikum sem fyrirtækið ræður ekki við.
-
Force majeure
Tilvik sem rekja má til óviðráðanlegra atvika, þar á meðal náttúruhamfara, verkfalla, stríðsátaka eða annarra sambærilegra aðstæðna getur aldrei talist vanefnd Hitatækni
-
Lög og ágreiningur
Skilmálarnir lúta íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur skal hann reynt að leysa með samningum, ella fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Neytendur (sbr. lög nr. 48/2003 um Neytendkaup) geta borið ágreiningsmál undir Neytendastofu eða Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
