Hvað er farið yfir í ráðgjöfinni?
Í ráðgjöfinni förum við yfir helstu þætti sem skipta máli við val á varmadælukerfi:
- Orkuþörf og einfaldir orkuútreikningar
- Val á varmadælu og kerfi sem hentar húsinu þínu
- Tæknigögn og samanburður á helstu valkostum
- Grunnkerfishönnun og tengingar
Hvernig virkar þetta?
Ráðgjöf á fjarfundi eða á staðnum.
Þú færð skýra mynd af bestu lausn áður en ákvörðun er tekin.
Undirbúningur
- Grunnmynd af húsi (ef til er)
- Upplýsingar um núverandi hitakerfi
- Myndir af tæknirými (ef við á)
Markmiðið
Að þú veljir rétta kerfið strax – án óvissu og óþarfa kostnaðar.
