Heim/Loft í vatn varmadælur

Loft í vatn varmadælurnar geta lækkað rafmagnsreikninginn um 50 til 75% á ári miðað við hefðbundinn búnað. Varmadælan er annað hvort staðsett innanhúss eða utan en það fer eftir gerð hennar. Þörf er á afísingu. Þessar varmadælur eru fáanlegar með neysluvatns hitakút. Loft í vatn varmadælur nota loft til orkuöflunar sem gerir þær háðar útihita. Þessar varmadælur geta tengst ofna-, gólfhita- eða neysluvatnskerfi og öllum þeim kerfum sem hitaveita væri annars notuð í. Betri varmadælur í þessum hópi breyta framrásarhita eftir þörfinni sem er hverju sinni og hámarka þannig sparnað.